| Halló og velkomin á heimasíðuna mína. Ég heiti Viktor Ingi og er nýfluttur til Keflavíkur |
|
|
|
|
|
|
Ég:
Ég fæddist á Landspítalanum laugardagsmorguninn 22. desember 2001 kl. 7:03. Ég var 3105 gr. og 49 sm. Ég átti að fæðast á aðfangadag en langaði að mæta í 60 ára afmæli ömmu minnar á Þorláksmessu og ákvað því að koma í heiminn þann 22.
Mamma mín heitir Jóhanna María og pabbi minn heitir Elías Þór. Ég á einn stóran bróður sem heitir Daníel Freyr, hann fæddist 6. janúar 1993 og eina litla systur sem heitir Sunna Mjöll, hún fæddist 4. febrúar 2005. Hún á sína heimasíðu sem þú getur skoðað hérna. |
|
|
|
|
Annað:
Steingeitin
22. desember - 19. janúar Steingeitin er alvarlegasta stjörnumerkið og oft er sagt að hún fæðist gömul og verði yngri eftir því sem árin færist yfir. Steingeitin er vel skipulögð og er ung að árum farin að taka þátt í rekstri heimilisins. Hún á stundum erfitt með að hafa gaman af lífinu og ekki er ólíklegt að barnið þitt velji frekar að raða fötunum sínum í skápinn en að fara út að leika. Mikilvægt er að foreldrar kenni börnum sínum að það er í lagi að slaka á og leika sér og að fullkomnun er ekki einungis ómöguleg heldur einnig mjög ópraktísk. Steingeitin er haldin fullkomnunaráráttu og óttast fátt meira en að missa sjálfsstjórn og þar með tök á tilverunni. Hún verður mjög óörugg ef hún hefur ekki gamalgrónar reglur og hefðir til að styðjast við og ef þær eru ekki til staðar er hún fljót að búa til reglur sjálf. Börn í steingeitinni eru mjög athugul, skynsöm og metnaðargjörn og dæmigerðar geitur vita allra merkja fyrst hvað þær ætla sér í lífinu. Mikilvægt er að kenna steingeitinni að tjá tilfinningar sínar, slaka á og sjá bjartari hliðar tilverunnar og ekki síst að ýta undir skopskyn hennar. |
|
| Þú ert gestur nr. 10477 |